Færsluflokkur: Menning og listir

Líf mitt er að fyllast af birtu

rainbow_animatedEins og ég var búin að segja frá átti ég og Nökkvi að fara til osteopat/healer á fimmtudag. Sem við gerðum.

Það var hrein og beint yndislegt og ég þakka æðri máttarvöldum fyrir að hafa beint leið minni að þessum manni.  'Eg fór fyrst inn til hans og byrjaði hann að vinna með að leysa upp spenningar í liðum og vöðvum sem ég er búin að berjast við í mörg ár. Þegar hann var "búinn" að meðhöndla mig og ég átti að vera búin, þá spurði ég hann hreint út hvort han gæti séð meira en við og svaraði hann því játandi. (Það er ekki talað mjög hátt um svona hluti í Noregi og maður kemst að hjá svona fólki gegnum kunningjaskap). Þá spurði ég hann bara hreint út hvort ég hefði komið með einhvern með mér sem ekki ætti að vera með mér. Hann horfði á mig í smá stund og reisti sig upp og kveinkaði sér og stundi og eftir smá stund svaraði hann , já.

Hann skrifaði eitthvað á blað og bað mig svo að koma og setjast á bekkinn, sem hann meðhöndlar fólk á, og gerði svo hlutina sína og það sem undarlegt var að hann kom eingöngu við mig það sem mér er búið að vera illt. Eftir smá stund var eins og þungu fargi væri af mér létt og hann sagði að hann væri búinn. Þvílíkur léttir og gleðitilfinning!

Hann sýndi mér 2 línu úr Jóhannesarguðspjallinu sem ég átti að fara með, út um allt hús heima til að hreinsa út neikvæða orku sem er búin að vera að gera mér vont.  Hann sagði svo að þetta gerði hann ekki oft en núna hefði hann þurft. Og ég fékk svo miðann sem hann skrifaði á og þar stóð " Det er ikke ok. Hun har en forbannelse. Der er i huset noe ikke bra energi" Sem mundi þýðast.: Það er ekki ok, Hún er með bölvun og í húsinu er ekki góð orka. Það sem ég var farin að halda eftir öll veikindin.

Hann sagði við mig að ég þurfi að koma aftur, Nökkvi verður full frískur eftir þetta , hann er búinn  að vera einstaklega glaður og hress eftir að við komum heim. Og að ég muni fá mismunandi viðbrögð við þessu en ég verði bara að halda út. Mín viðbrögð eru mest bara búin að vera gleði, gleði, gleði. Það er svo afskaplega langt síðan mér hefur verið svona létt til sinns.

Eins og hann bað mig um þá hreinsaði ég húsið þegar ég  kom heim og að sjálfsögðu títlaði Nökkvi með mér út um allt og pískraði með mér.  

 

'eg er svo þakklát fyrir að það finnst svona fólk sem getur hjálpað okkur hinum og uppfull af þakklæti til æðri máttarvalda. Takk, takk.

 

'a sunnudag er íslensk messa í kristiansand og mig langar að fara. Það verður yndilegt að heyra messu á íslensku og þar að auki vil ég fara og þakka fyrir mig. 'eg á yndislega að og hef verið heppin. 'Eg vil ekki taka þessu sem sjálfsögðum hlut því það er það ekki.

Þeir sem hafa hitt mig eftir meðferðina segja að það sé svo létt og bjart yfir mér þ´´o svo að þeir viti ekki hvað. Gaman, en það er alveg nóg að ég finni breytinguna sjálf.

   Alheimsljós til ykkar allra og kærleikur.  


Here we go again.

  Já here we go again. Nökkvi fékk gubbupest á aðfaranótt fösturdags. Hann er meira eða minna búinn að vera með niðurgang i 2 vikur og byrjaði semsagt að gubba þá. hann er búinn að vera með hita af og til alla helgina og mjög slæmur i maganum. Og byrjaði aftur að gubba í morgun. Hann er orðinn svo ræfilslegur greyið. 'eg vildi bara óska að hann færi að fá að vera frískur allavega mánuð á milli kasta. En að vissu leyti er hann hæst ánægður að þurfa ekki að fara í leikskólann.

'A laugardag voru reista sperrurnar sem stúka af þvottahúsinu/baðinu frá restinni og mér finnst alveg rosalega gaman að geta farið að sjá stærðina á þessu. Við erum búin að panta hurð svo nú verður hægt að labba beint út úr þvottahúsinu. Og þvílíkur lúksus að fá þvottahús!!!!!!!  Já þetta verður munur.

Nú er farið að verða kalt hér og við farin að kynda eins og vitleysingar. Það er náttúrulega frakar mikið kalt í húsinu því það er ennþá opið niður í grunninn. Það verður ekki hægt að loka fyrr en pípulagningarmaðurinn er búinn með sitt. En mig er farið að hlakka svo mikið til að geta málað og omið öllu í lag.

Er búin með eit pöntunarmálverk og á eitt eftir. Vantar bara pínu næði og minna gubb til að getað málað.Wink Koma tímar koma ráð.

Jæja nú verð ég að þvo þvott, er víst af nógu að taka með svona pest í húsi.


Lillesand og Birkenes Maleklubb

Það er alveg voða, voða mikið hjá mér að gera núna. 'eg er byrjuð að vinna aftur, ekkert voða gaman. Og var að opna heimsíðu fyrir málaraklúbbinn minn. 'Eg á í einhverjum vandræðum með að tengja hann við leitarvélar,síðan kemur aldrei upp svo ég ákvað að reyna að skrifa um hann hér og leggja inn hlekk og fara bakdyramegin að þessu. Svo hér er hlekkurinn: http://www.freewebs.com/maleklubb/

'Eg vona að þetta hjálpi. Já, ´það gengur vel með rottutítlurnar og sá stóri er mjög ánægður. Hann tók það stóra skref í gær að klippa á sér hárið sem náði niður fyrir axlir. 'Eg spurði hann aftur og aftur hvort hann væri viss, og fékk til svars: já, ég var viss en þú ert að gera mig óvissan!

Svo ég klippti og klippti og það var gaman að sjá á honum breytinguna. En hann er ekki með herraklippingu. Hann er með langar tjásur hér og þar og er hæst ánægður með það. 'eg hef tekið eftir því að eftir að hann byrjaði á lyfjunum er hann farinn svona smá að  hugsa um eigið hreinlæti og útlit sem er bara gott mál.   

'I dag er ég í fríi og ætla að nota hann í að sauma gardínur fyrir þann stora.Er búin að fá efnið en hef verið eitthvað löt við þetta. Skelli bara jóla músík á fóninn og fæ súpersaumaorku. Verð reyndar að laga til líka en er það einhvað sem er virði að nefna????  .Er komin með hugmyndir af nokkrum málverkjum og verð að fara að setja í gang því það er sýning í enda mánaðar. Gaman, gaman. Er meir að segja búin að kristna eina í vinnunni um að allir geta málað, það þarf bara að finna sinn stíl og viti menn að hún er byrjuð! 'eg ætla að kristna allan heiminn í þessum málum því ég meina þetta innilega að allir hafa einhverja hannyrðir í sér. Það er bara að finna rétta miðilinn.

Jæja garra gó! Við heyrumst seinna.

 

Já elsku mamma til hamingju með daginn!!!!!!!!!!!!!!!   


Glatt i húsi á ný.

Nýju rotturnar komu i dag. Við fengum okkur 2 því þetta eru svo miklar félagsverur og hjálpa hvor annari með þrifnað og annað. Þær eru bara 4 vikna þannig það ætti að ganga mjög vel að temja þær. 'Otrúlegt ern satt þá eru þetta alveg rosalegar dúllur.  Annars er lítið að frétta, +eg fer að vinna núna um helgin. Er búin að vera sjúkraskrifuð í langan tíma útaf ofþreytu. Og líka veikindum. Mig laaaaaaaaaangar ekki að fara að vinna. Er ekki að fíla vinnuna mína en svona er lífið stundum.

'Eg er búin að sækja um margar aðrar vinnur en hef ekki fengið svo mikið sem eitt nei einusinni. Maður er kannski farinn að verða of gamall????  Hver veit. Finnst ég allavega stundum gömul en ekki oft.

Sýningin klárast á sunnudag og ég er spennt að vita hvort einhver hefur selt. Mér finnst alltaf svo gaman þegar einhver selur sérstaklega ef það er manneskja sem eiginlega aldrei selur þótt flink sé.

utstillere på kulturuken Vennesla.
Hérna eru við kellurnar sem voru með sýninguna.Og auðvitað bæjarstjórinn með. Það vantar reyndar 3 á myndina en skítt með það. 'Eg er lengst til hægri.
Glæsilegar og yndislegar konur.Heart 

 


Vil ikke solasikka!

  Nei, nei ekki solasikka! Segir sá minnsti. Við áttum að mæta í skoðun á sjúkrahúsinu i dag og var sá minnsti hæst ánægður með að þurfa ekki á leikskólann, deildin heitir solsikka.(sólblóm). Svo´þegar ég kom heim eftir skólaskutl þá var hringt frá sjúkrahúsinu og læknirinn var orðinn veikur. Svo nún ætla ég að senda þann litla á leikskólann og lét hann vita sf því. Þá kom bara : Nei, nei mamma, ekki solasikka. Vil vera heima i nökkva hús með mömmu!

'Eg er skíthæll   og ætla samt að senda hann því hann var í fríi í gær og venjulega grætur hann þegar ég skila honum af mér og versnar ef hann hefur verið heima i nokkra daga.

Og það á litla mömmuhjartað rosalega erfitt með að þola.  

 


Sýningin er hafin.

Gúddag allir saman.

'Eg var búin að segja að ég ætlaði að setja inn myndir frá sýningunni. En viti menn að ég gleymdi að taka með myndavélina.  Já, það er ekki hægt að muna eftir öllu.

Föstudagurinn byrjaði að sjálfsögðu með stressi. Skutlaði þeim litla í leikskólann og fór svo í klippingu. Allt var óskaplega vel planlagt og átti að vera nógur tími. Fór svo að týna saman það sem þurfti fyrir sýninguna og viti menn að nýja málverkið mitt sem átti að vera 1 af 3 hluta málverki var of stórt fyrir bílinn!!!!!!!!!!!!!  Sama hvað ég snéri og potaði, nei það fór ekki inn. Og þar sem ég átti að mæta á fund út af þeim eldri stuttu seinna gafst mér ekki tími til að reyna að redda mér á annan hátt.

Nú þá hélt ég á fundínn sem var margfræðilegur, og þar á meðal ákveðið að hann ætti að byrja á ritalin á mánudag, semsagt í gær. Og SVo var haldið á sýninguna. Var komin þangað um 2 leytið og þá voru hinar kellurnar mættar og mér til mikillar skelfingar voru þær þá farnar að hengja upp og það var bara ekki að gera sig hvernig þetta leit út.

'Eg hugsaði með mér að þær væru búnar að eyðileggja sýninguna. En ég vildi ekki blanda mér inn. En sem betur fer vildi ein af þeim fá hjálp og leitaði til mín. Því ég er komin með talsverða reynslu í þessu enda var ég ábyrg fyrir uppsetningum á sýningum áður. Nú, ég tók mig til og hengdi upp allar myndirnar, 103 stk, með góðri aðstoð frá nokkrum sem sáu sömu vandamál og ég og við vorum búnar að þessu kl 20,30 um kvöldið og þá var haldið heim.

'A laugardag ákvað fjölskyldan að mæta með á sýninguna til að styðja við bakið á mér og var sýningin opnuð með pomp og prakt kl 14. Bæjarstjórinn opnaði sýninguna og menningarvikuna og ung stúlka spilaði á gítar og söng fyrir okkur nokkur lög. Það eina sem var lélegt var að það mætti enginn frá blöðunum. Þannig að ég tók mig til og skrifaði bréf þar sem ég formlega bauð þeim á sýninguna og bað þá samtímis að vera flinkir við að styðja svona framtakssemi sem menningarvikur eru og að styðja við menninga´líf og listamenn. 'Eg vona bara að það hafi einhver áhrif.

'A sunnudag sat ég vakt og það rigndi eldi og brennistein og komu því fáir. En það sem gaman var, var að þeir sem komu in sýndu málverkjunum mínum mikinn áhuga.

'i gær byrjaði sá stóri á ritalín við blandaðar tilfinningar. en eina leiðin til að vita hvort það muni hjálpa er að prufa og hann á að vera á þeim í 4 vikur.

En um morguninn tekur hann eftir því að rottan hans, hún Fíffa, er einstaklega slöpp greyjið. Og hann bað mig um að fylgjast með henni. 'Eg tók svo eftir því að það voru einhver kvikindi að skríða á henni og hringdi i dýralæknirinn sem skrifaði út flóarlyf. Sem ég bar svo á hana, en ´hun bar vversnaði og það endaði með því að hún dó í fanginu á Nikulás í gærkvöldi. Og hann var alveg rosalega dapur.   

'i dag var hún jörðuð út í garði eins og hin dýrin hans. Og við fáum 2 nýjar rottur á fimmtudag. 'Eg lofaði honum þessu að þegar hennar tími væri búinn fengi hann 2 nýjar rottur og ég mun standa við það. Enda er hann rosalega hrifinn af þeim og flinkur með þær.

Semsagt búið að vera góðir og minna góðir tímar hér núna.  

 


Stíflan losnaði.

funny-monkeyGóðann daginn.
Stíflan losnaði!!!!!  

Kláraði i gærkvöldi 2 myndir sem eru í sama stíl og "Umhyggja". Þetta á að vera 3 mynda sería og ég mun taka myndir þegar ég er búin að hengja upp á sýningunni og setja inn.

'Eg er að fara í klippingu á eftir til að líta út eins og nútíma manneskja, ekki hellisbúi. Og eftir það þarf ég að fara á fund með ABUP. Það er avdeling for barne og ungdoms psykiatri.  Það eru þeir sem hafa með greininguna á Nikulás að gera. 'I dag á að vera fundur með skólanum og PPT, sem er barna og unglinga geðhjálpin (held ég, þau vinna með barnaverndarnefnd og hjálpa foreldrum með börn með sérþarfir). Heitir eiginlega pedagogisk psykiatrisk tjeneste for barn og unge.

'eg vona að það verði komið með einhverjar niðurstöður i dag. Því þetta er farið að verða ansi langdregið, En gulrótin er  að hann sé að fá hjálp og nái að byggja aftur upp sjálfsálit og styrk.  Það er það mikilvægasta. Jæja dúllur, verð að fara að kasta mér í verkefnin sem eru fyrir hönd. Við heyrumst síðar.  


Hvar er innblásturinn?????

Er búin að reyna og reyna að mála í dag. Sköpunargleðin er til staðar en ekki innblásturinn. Hvað skal gera, ó mæ, ó mæ. Það er sýning á laugardag og mér finnst ég ekkert hafa til að sýna.
Kannski er þetta sýningarskrekkur, ég veit ekki en allavega verður allt sem ég geri að lifrakæfuSick .

Er ég  að gera of stórar kröfur, hmmmmmmmmmmm, ekki gott að vita.Vona bara að andinn fari að hellast yfir mig og ég þurfi ekki að sýna kæfumyndir, en það væri nú algjör gjörningur að gera það.Crying

Læt ykkur vita ef það losnar um þessa stíflu. Það hjálpaði allavega ekki að það væri pípulagningarmaður hér. Hann losar ekki svona stíflu, held ég, þorði ekki að spurja hann.Blush



Gleymni

Það hefur verið mikið talað og skrifað um gleymni karlmanna og ég verð bara eftir morgunin í dag að segja mig sammála í þessu. (hef reyndar rekið mig á þetta oooooooft áður). en í dag hófst morguninn á þann hátt að eftir að var búið að reka þann stóra og plata þann litla á fætur átti að gera sig tilbúinn til farar. Og ég segji við þann stóra að muna eftir matboxinu og þá kemur það í ljós að skólataskan finnst ekki..................... Þá var mömmunni kennt um allt saman þar sem hún var í því að taka herbergið hans í gegn í gær að mála það og svona.... En mamman var saklaus og hafði ekki séð skólatöskuna í marga, marga daga. Og svo dettur mömmunni það í hug að á síðasta skóladegi fyrir helgi var hann samferða vini sínum og mömmu hans heim. Og viti menn eftir símtal kom það í ljós að taskan var hjá þeim. Og þá var vandamálinu reddað og svo var drifið af stað 
enda tíminn orðinn knappur og öllum 
var skilað þangað sem þeir áttu að fara og mamman fór heim til að halda áfram að innrétta herbergið
hjá þeim stóra. Og var fegin að hún væri nú loksins komin með frið og ró og jólalög(!) i húsið.

En rétt fyrir kl 11 hringir sá stóri: Mamma ég gleymdi nestinu heima, getur þú komið með það N'UNA?! Og þá þurfti mamman að skutla matarbitanum á réttan stað.En annars er mamman bara búin að vera að lita föt og mála og innrétta og gera þessa týpísku kvennaverk núna. Og er húskofinn farinn að líta svona nokkuð ágætlega út eftir málingu og breytingu hjá þeim stóra. Allt hans drasl var borið út um allt hús til að koma fyrir á meðan. En þó mamman segji sjálf frá þá er herbergið bara ansi töfft. Hún málaði
 það rautt,dökkgrátt og er með 2 ljósa veggi á móti og hvitar mublur. Stílhreint og töfft fyrir unglingsstrák (að verða). Reyndar er sá stóri kominn í mútur og gelgjan er farin að herja illa með hann. Enda er mamma hans stærsti api í heimi og líklega ef lengra væri leitað í vissum tímum.





Börnin mín fallegu.

Já,ég hef skrifað inn hér eins og að allir sem lesa þekkja okkur. 'Eg hef skrifað mikið um yngri son minn og læknavesen hans uppá síakastið. Hann Nökkvi minn er nú 3 ára og hann fæddist 6 vikum fyrir tímann. Hann hefur verið seinn til með suma hluti en innan eðlilegra marka. Hann var sendur i greiningu i november i fyrra og er greindur ofurvirkur. Ekki með ADHD því hann er of ungur til að fá þá greiningu.  I greiningunni kom það i ljós að hann á við
 einhver mótorísk vandamál að stríða í munninum og hann slefar þessvegna
rosalega mikið.Og þessi vandamál í munninum gera honum erfitt að tala. En hann sýnir 
 mikinn framgang núna.
Hann er í leikskóla með sinn eigin aðstoðarmann allan tímann og er með 5 tíma
hjálp á viku af spesialpedagog. Hann er að læra að leika við önnur börn og hann á við
athyglisskort að stríða. I november 2006 byrjaði hann að verða lasinn og á endanum
var hann lagður inn á sjúkrahús i enda febrúar 2007 og greindist þá með lungnabólgu
sem bara kom
fram á röntgenmyndum. Það tók hann langan tíma að ná sér af þessu 
og hann virðist ekki vera með mikinn mótstand á móti kvefi þó hann sé á sterkum astmalyfjum.
En við erum að vona að þetta fari nú að róast. Nú á hann semsagt að fara annað hvort til nevrolog eða öre,nese, hals spesialista til að reyna að finna út úr því útaf hverju hann slefar svona
rosalega. Logopeden sem hann er með segist alrei áður hafa séð svona alvarlegt tilfelli og
segist ekki getað hjálpað honum með þetta.
Svo það er næsta mál á dagskrá.

'eg á eldri son, Nikulás sem er núna 12 ára og hann er líka í greiningu. Hann hefur alltaf átt við einbeitningarskort að stríða og nú lítur út fyrir að hann fái hjálp. Við fengum að vita það í gær að hann á að fá laptop til að hafa til að gera heimalærdóm á og til að nota í skólanum og við vonum
að það létti honum lífið svolítið. En allt í allt þá eru börnin mín þau fallegustu, 
bestustu og fínustu í 
þessum heimi og
falleg bros þeirra ylja mér um hjartarætur. Hver og einn sem kynnist þeim er orðinn
rikari maður.InLove
Já fyrir ykkur sem kíkið hérna af og til er þá léttara að skilja hvað ég er að skrifa um.
 
I gær gerði ég tilbúna eina mynd sem ég mun líklega setja á sýninguna sem verður næstu helgi.
Nú er um að gera að velja vel og er ég búin að fá að vita að ég fæ 3 metra af vegg til að
hengja upp á.
Sem er ekki slæmt miðað við að þetta er sameiginleg sýning fyrir listamenn af suðurlandinu. Það verður vernissage við opnunina og bæjarstjórinn mun setja menningarvikuna í sýningasal okkar sem er alveg frábært því það verða ýmsir blaðamenn til staðar. Það væri ekki slæmt eð fá
myndirnar sínar í blöðin.Tounge  Spennandi.
Klem og knús til allra sem lesa.
KleinanKissing

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband