Færsluflokkur: Menning og listir

Ný sjúkrahúsferð.

Um helgina hefur Nökkvi verið frekar undarlegur. Hann er búinn að vera agrssivur, þó hann sé ofurvirkur þá er agrssjon ekki eitthvað sem er honum eðlislægt. Og hann datt án fyrirvara af stól sem hann sat grafkyrr á. En stundum er maður óheppinn og ég spáði ekki meira í þvi.

Þegar ég vakti hann i gærmorgun til að fara í leikskólann var ekkert fútt í honum og mótmælin gagnvart leikskólanum voru bara sögð einusinni o´g lágt.

'eg fór í vinnunna og svo var hringt úr leiskólanum og Nina, sú sem hugsar um hann, spurði hvort hann hefði ekki sofið um nóttina því hann var bara búin að liggja síðan hann kom og talaði ekkert, svaraði ekki og súndi því engan áhuga þegar besta vinkona hans kom. Og við urðum sammála um að hann mætti sofa. Og svo sagði ég að hún ætti bara að hringja ef henni fyndist eitthvað vera. Því hann er ekki með hita, ekki kvef og ekkert búin að vera slappur þannig.

Það líður ca hálftími og þá hringir hún aftur og segir að hann hafi sofið í 10 mín og hann sé vakandi en ´hun nái ekki sambandi við hann og biður mig um að koma. Því hann var apatískur.

'Eg sótti hann og fór með hann til læknisins og þá var hann farinn að svara en bara já og nei. Hann var eins og hann væri mikið lasinn og bara lá. Og úr þessu var ákveðið að við yrðum að fara á sjúkrahúsið. Því þetta lýsir sér eins og vægt flogaveikiskast. Við vorum það í allann gærdag og allar blóðprufur eru fínar, og Nökkvi er eins og hann á að sér að vera. En við eigum að koma aftur á morgun í eeg, heilalínurit, og ef það kemur ekkert fram á því þá á að reyna að trigga fram kast með að halda honum vakandi. Við fengum heim með okkur lyf til að stoppa kast ef hann myndi fá það.

Hann svaf inni hjá okkur í nott og er búinn að gubba mörgum sinnum. Hann er sofandi ennþá og við sjáum bara til hvernig allt verður í dag. Allavega verður hann heima og við munum taka því með ró . ég og hann. Annars er bara allt í fína, ca 70 cm með snjó og rignir niður í þetta. En það sem er gott eð snjóinn er að þá er ekki eins mikið skammdegi. En hundleiðinlegt að moka þetta.

Alheimsljós til ykkar allra. Nú ætla ég að velja úr góða kristalla og virkja þá í baráttu fyrir litla kleinuhringinn og sálarlífið. knús   


Gleðilegt nýtt ár!

Gleðilegt nýtt ár allir saman.

Hér var gleði um áramótin. Við vorum heima hjá tengdó og borðuðum þar alveg rosalega góðan kalkún og góðan dessert. Og vorum iðin við að sprengja búmm,búmm. Nökkvi alveg yfir sig hrifinn og hljóp um með stjörnuljós og hann vakti alveg til kl 1.30. Nikulás er orðinn sannur pyroman og fékk ansi mikið "bakkefyrverkeri" svona smásprengjum og kökum sem springa á jörðinni. Við höfðum fengið rakettur hjá nágranna okkar og svo var keyptu góður fjölskyldupakki og pínkulítið meir. Alltaf gaman að sprengja peningana sína í loft upp.´

Núna er skólinn byrjaður og grámyglulegur hversdagsleikinn tekinn við á ný. En mér finnst það bara ágætt. Það passar manni betur að hafa börnin og sjálfan sig í smá aga og rútínu. Nú snjóar og snjóar og spáð er 1 metra af snjó á morgun eða um helgina. Og að sjálfsögðu er ég að fara að vinna. En ef það verður mikill snjór þá nenni ég alls ekki að moka út bílinn og labba frekar. Það er náttla ekki vitlaust að viðra líkið af og til.

'i dag er ég ein heima og er að fara að pakka jólunum. Mér finnst þetta vera orðið ágætt og hlakkar til að fá hlutina eins og þeir eiga að vera. Svei mér þá, ég er farin að verða vanaföst   . Já, ekki er öll vitleysan enn!

Til þeirra sem fengu málverk í jólagjöfWink, myndup þið vilja  vera svo væn að senda mér myndir af þeim. Gleymdi því eins og venjulega. Og Fríða, myndir þú getað tekið myndir af öllum málverkjunum sem mamma á og senda það til mín????????  Það væri tími til kominn að fara að skjalfesta það sem ég er búin að vera að gera undanfarin ár upp á gott og vont. Jæja er að fara að stússast.  


Jólagleði

Jólahátíðin er búin að vera alveg ágæt hér á bæ. 'eg er reyndar búin að vera að vinna svo að segja mestapartinn af jólunum. Við náðum að klára stofuna aðfaranótt 22. Það á reyndar eftir að lista og laga svona smá atriði en það er hægt að halda jól fyrir því. 22 fórum við í 40 afmæli hjá vinkonu minni og það var alveg rosalega gaman. Hún bauð okkur öllum út að borða á kínverska veitingarstaðum hérna og svo var haldið á kránna og drukkið og dansað. Rikki passaði uppá að ég kæmist heim á réttum tíma því ég átti að fara að vinna daginn eftir. Þegar ég vaknaði þá var ég inni í rúmi og fór fram. Þá var kveikt á sjónvarpinu og ég frekar hissa yfir því útaf því að strákarnir voru hjá ömmu og afa. Og svo sá ég að það var búið að flytja sjónvarpið svo það var hreinlega að detta útaf borðinu. 'eg var mikið hissa á þessu og kenndi Rikka um allt.  Og lagaði þetta og dreif mig í vinnunna. Var reyndar frekar brísin ennþá en skítt með það. 'Atti bara að skúra. Þegar ég kom heim dagði ég Rikka frá þessu með sjónvarpið og fundum út úr því að líklega hefði ég gert þetta því ég sofnaði víst á sófanum og ekki séns að fá mig inn í rúm. En síðan ég vaknaði þar þá er ég líklega sökudólgurinn.Blush

Svo var haldið í bæinn að kaupa síðustu jólagjafirnar. Loksins kom kvöldið og engin skata hér á bæ. Norðmenn þekkja ekki slíkt. En þá fékk Rikki afmælisgjafirnar sínar frá okkur. Sett með rakspíra og sápu og 12 ára gamalt whiský og hann var mjög ánægður með það.

 

'a aðfangadag var haldið aftur í næsta byggðarlag því það hafði gleymst að kaupa kjötið og því var reddað. Svo var haldið heim og versta rykið og skíturinn fjarlægður. Sá minnst kleinuhringur var reyndar alveg sturlaður undir máltíðinni og má segja að það hefur sjaldan verið svona mikil skapmengun undir jólamáltíðinni. Vonum bara að þetta komi ekki fyrir aftur. En mikið rosalega fannst honum gaman af öllum gjöfunum og gargaði við hvern pakka: ný svona mynd, ný föt, nýr bíll!!!!!!!  O.s.f.v. Nikulás var mjög ánægður með allt sem hann fékk og við líka. Svo var haldið til tengdó og mikið gaman þar.

Nú eru raketturnar komnar í hús og Nökkvi heldur ekki vatni yfir öllu búmm búmminu sem við eigum og er ansi spenntur og Nikulás er við að stökkva úr eigin skinni af spenningi.

Mig langar bara mest í smá frið og ró og frí úr vinnunni. Er reyndar í fríi um helgina og hlakka til. Enda orðin frekar lúin. Og ég verð að viðurkenna að fastur rythmi í daglega lífinu hentar mér bara vel.

En það er alltaf gaman um jólin.Wink


Þeytingardagur 2.

DQCAK66PDVCAZJO032CAZ9Z851CAYI33AFCA8NVXARCAJZQEXRCATM8GKICAGK1W8LCAN5YLQECA9M75FDCAT0MUGWCANG4GXHCADVIW20CACGM9MVCAUT4JU2CAJK8TKNCA01E2AJCAY7Z51CCAGMNC22
Nú toppaði sá elsti allt annað sem áður hefur gleymst eða misskilist.
I gær áttum við öll tíma í klippingu og hann átti að koma strax eftir skóla. Skólinn var búinn 13.50 og hann átti tíma kl14.  'Eg og Nökkvi vorum búin að klippa okkur og biðum eftir honum. Og tíminn leið og kl 14.15 keyrði ég upp í skóla, nei hannvar ekki þar. 'Eg hringdi heim, ekkert svar. KL 14.20 sá ég hann loksins koma hæg röltandi niður aðalgötuna. En tíminn var liðinn, næsti kúnni kominn og ég þurfti að borga fyrir hans tíma þó hann hefði ekki notað hann. 'eg varð milt sagt brjáluð.......... Og lét hann heyra það. En hans afsökun var að hann hefði ekki verið viss hvor stofan það væri og hann hefði ekki séð bílinn okkar.  Bæ þe vei þá notum við aldrei hina stofuna þegar við klippum okkur. Og ég sem sagt lét hann heyra það og hann hvarf inn í herbergið sitt þegar við komum heim og ég sá hann ekki meir fyrr en ég kom af kvöldvakt. Jedúddamía, ég get ekki beðið eftir að heyra frá læknunum, hann verður að fá að halda áfram á ritalíni. Þetta er partur af hans vandamáli, hann getur ekki munað svona lagað og ég veit það eiginlega. En maður verður að reyna að fá hann til að taka smá ábyrgð. En hann þarf lyfin því þá getur hann sorterað hugsanirnar og nær að skipuleggja sig.
I dag er ég aftur að fara til healer. Og Nikulás ætlar að fara með mér. Hann á ekki tíma, en ég ætla að athuga hvort hann geti fengið tíma seinna. Og líka að fá að vita hvort hann telur sig getað hjálpað Nikulási. 'Eg er að spá í því, útaf að Nikulás er með sérstaka týpu af psoriasis undir fótunum og inní höndunum og fær alveg einstaklega slæm köst á veturnar. Þá eru hendurnar, aðallega puttarnir eins og hráar kjötbollur og ég geri ekki annað en að skifta um sáraumbúðir. Og þetta er svo sárt. Og í fyrra fékk hann kröftuga sýkingu í þetta og þurfti bæði pensilinkrem beint í sárin í marga daga og sterkan pensilinkúr til að drepa þetta niður.
Já,já. Svona er þetta bara eins og norðmennirnir segja. Og stundum er það rétt að maður verður að sætta sig við hlutina en ég get mig ekki fyrr en ég er búin að prufa allt til að getað hjálpað strákunum með sín vandamál.
En sveinki kom með gjafir til beggja í nótt. Smá bömmer því Nikulás átti báða smábílana sem sveinki kom með  
Hann gerir betur næst..........
  

'A síðustu stundu................... :(

Er þetta virkilega hægt að vera alltaf svona á síðustu stundu með allt, arg!!!!!!!!

'I dag er síðasti dagur til að senda gjafir til Íslands,allavega sem þeir garantera að pakkinn komi i tæka tíð. Og ''EG, eins og venjulega er á fullu núna að búa til jólagjafirnar.............

Þarf að skjótast í næsta byggðarlag til að kaupa það sem vantar og só on og só on. Er líka að fara með mig og drengina í klippingu kl 13-13.30 og 14. Svo að fara á kvöldvakt. 'Eg get kennt sjálfri mér um stressið sem ég bý við. Og ég veit það er virðist að öllu ófær um að breyta mínum slæmu ávönum.  

 

En annars er bara lífið nokkuð ljúft og kleinan er ánægð. Málarasýningunni er lokið og eins og venjulega seldi ég ekkert, en ég keypti eina mynd sem á að verða jólagjöf. One down, more to go.

En ég verð bara að segja það að þetta stress fyrir jólin fær mig til að meta það ennþá betur rónna sem kemur yfir mig á aðfangadagskvöld.

 

horpuleikari
Jæja best að drífa sig.
Jólin eru handan við hornið

'Eg er enn á lífi.

'eg verð bara  að biðjast afsökunar á skriftarleysi mínu. 'Eg á í stökustu vandræðum með tölvuna mína sem kastar mér út aftur og aftur.Crying Reyndar er það ekki bara talvan sem er orsök í þesssu heldu. 'Eg er líka búin að vera frekar upptekin. Við erum með jólasýningu í Lillesand og samtímis workshop. Mjög spennandi, svo er ég að vinna á fullu. Rikki stendur sig eins og hetja í þessum byggingarmálum og er píparinn að koma á morgun til að ganga frá sínum málum. 'Eg er búin að búa til nokkrar jólagjafir og aðrar standa sem fastast í mér og eru ekki að vilja út.Sick

 Nökkvi er í því að hætta með snuddu og fær hana bara á nóttini og þetta gengur ágætalega. Nikulás er búinn með prufutímann á ritalín og við erum öll sammála að þetta reynist honum mjög vel og viljum að hann haldi áfram á þeim. Við vorum á fundi um þetta á föstudag og fáum að vita á þriðjudag hvort læknirinn sem sér um hans case er sammála. Vonum það. Allavega ég læt þetta fréttaávarp á skriftmáli vera nóg í bili og vona að ég geti tjónkað betur við tölvuna næstu daga og látið vita meir af mér og mínum.Heart

 


Að verða engill

ANDR302~Heaven-Of-Angels-Posters
I dag urðu 2 að englum i vinnunni. Maður og kona.
Mér finnst það ekki sorglegt.
'Eg finn til með fjölskyldunni,
en fyrir persónuna sem farin er
finn ég bara léttir.
Loksins er langri likamlegri kvöl lokið,
og i minni barnatrú
sé ég þau fyrir mér,
hver með sinni fjölskyldu.
Nú þurfa þau ekki að liggja lengur ein.
Þau eru farin í alheimsljósið,
þar sem engum er kalt
og enginn er með kvalir.
Af hverju er maður að kvíða fyrir,
er þetta ekki oft eigingirni
þeirra sem eftir standa.
Mér finnst það oft þegar um aldrað fólk er að ræða,
þau eru búin að hafa sinn tíma.
En það er annað með börn,
þessir litlu alheimsenglar sem aldrei fá að láta ljós sitt skína í þessum heimi.
Það er sorg.
'Eg er þakklát fyrir mig og mína. 
'Eg er þakklát fyrir að eiga yndislega að.
L'ifið er hér og nú
ekki á morgun.
'A morgun segir sá lati.
Halló!!! Lífið er N'UNA! 

Góðann daginn.

7HCA17DQRBCAX62B9VCAJFY6AGCAO7GQ96CA7QSTF1CAJKCV5ECA40R8TCCA8D87P7CABZKQI0CAWFTWWCCA38LXBGCAF3D52PCAGKJRYTCALNC0V0CALXFUBCCAQBZ1QCCAW78TVNCAFD9UV2CA49PBC1

 

Góðann daginn dúllurnar mína allar.

Hér eru allir sofandi nema ég og ástarpungur sem er farinn í vinnunna. Yndislegt að geta druslast um i náttfötunum og enginn þarf á mér að halda ennþá...........

Rotturnar pukrast um og þrífa sig og taktfast snuddusogið hjá minnsta kleinuhring eru hljóðin sem mig umkringja. Miðað við lætin í snuddunni hjá þeim minsta200351011160_0 þá er ekki langt í að hann fari að yfirgefa draumaheim og kíkja á mig.

'Eg þarf að fara á fund með logopedinn á eftir og svo að vinna, víííí (not). Er að vinna um helgina og fæ að vita í dag hvort vöktunum mínum verður breytt því á vaktlistanu er ég að vinna 9 daga í röð og ég lét vita að ég væri alls ekki sátt við það. Maður er nú ekki að vinna á borpalli, hmmmm, eða hvað.

Nei þrifkelling er það sem ég er og um helgar er ég aðhlynningarkelling sem strekkir þlinmæðis

pritty389

teygjununa sína svo um munar. Teygja, teygja, teygja.

Eins gott að fara með nýja tegju í vinnunna, því hætta er á að sú gamla slitni.

Megi alheimsljósið lýsa yfir ykkur og vísa ykkur veginn.

  


Allt fer að fá sína réttu mynd

  Loksins fer maður að sjá fyrir endann á framkvæmdunum. Rikki setti í bakhurðina um helgina þótt hann væri alveg drulluslappur. Hann greyið smitaðist af þessari pest sem strákarnir eru búnir að vera með. En er betri núna. Og hann er farinn að útbúa hellinguna sem  á að vera á gólfinu. Svo þetta fer allt að batna. Annars er nú bara allt í góðu hér. Er reyndar farin að finna fyrir þessum verkjum sem maðurinn var búin að vara mig við en hef þetta vel af ennþá. Með illu skal illt út reka...................... Og ég finn fyrir því að ég er léttari til sinns en ég hef verið leeeeeeeeengi. Og stend sjálfa mig að því að brosa þótt ekki sé nein sérstök ástæða fyrir því.T8CAGSJTWBCANVC9N9CAZQ36AWCAMZMC0RCA1FM0QFCA2SI4WCCAZZ4WTTCADUVJM9CA42E6N6CASSNA82CAU8ULTRCA6IAX5RCAFT9D19CAGFT69TCAA84729CATC62BMCA5G0V71CA0TPH3ACA32RSDE 

Það er bara létt yfir mér og ég er þakklát. 'Eg fór i kirkjuna á sunnudag og var mjög sátt. Það var nú lítið af fólki en boðskapurinn var sá sami og presturinn , kona, var yndisleg.  Það á að byrja sunnudagaskóli fyrir íslendinga og ég er að spá í að fara með strákana. Sjáum til hvernig gengur með þann stóra,hmmmmm...

'I morgun hljóp ég um allt og lagaði til og svei mér þá , ég komst yfir allt húsið í einum heljarrykk! JESSSS!!!!!! Svo hellti ég upp á kanilkaffi og fékk eina vinkonu i heimsókn og ég veitti henni "lynkurs" í málingartækni. 'Eg ætla að mála-kristna alla þá sem eg get. Hún varð alveg heilluð. Hún var búin að vera að pukrast við þetta heima og ég ákvað að bjóða henni í heimsókn og við mundum mála saman.  En ég held að hún hafi ekki þorað að koma með málingardótið sitt, but I was a person on a mission, og skellti mér í að mála fyrir hana og þá mynd tók hún með heim sér til hliðsjónar. Og svo þaut hún í næsta byggðarlag að kaupa sér betri pensla og meiri málingu. Því eins og allir sem byrja´þá á hún bara sett með prím litum og vantar þessa helstu jarðliti og liti sem er gott að blanda með.

'eg er spennt að heyra í henni. Það er gaman að geta leiðbeint fólki sem virkilega langar en hefur sig ekki í að mæta í málaraklúbba og byrja, sérstaklega ef það er alveg nýtt i þessu hobbýi.

'Eg er að verða búin með jólagjafirnar til 'islands. Sem er nú bara besta mál. En ég vil ekki segja meir en það að ég hef staðið við áður gerða samninga um það að reyna að búa til gjafirnar sjálf.......................  

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband