Færsluflokkur: Menning og listir
15.1.2008 | 10:32
Búin i ct
Jæja er búin í ct. Nú er bara að bíða eftir aðgerðinni. Stoppaði í hobbýbúð og keypti smá perludót. Nökkvi var í leikskólanum fra 8-11. 'Agætis byrjun. Hann verður líka stutt á morgun. Þá fer ég til tannsa ( . Vonandi fer það vesen að verða búið. Er búin að taka ákvörðun og er búin að fá nóg. Mun láta vita af því á morgun. Verkir í 3 ár eru nóg.
Nóg um það. Er að fara að stússast með stubb. Keypti handa honum lestarskinnur og nú erum við búin að byggja lestarspor sem eru 3 hringir. Hann alveg svaka happý!
'A morgun eru 17 ár síðan ég stafraði augafull yfir grindverkið hjá Rikka og bankaði á gluggann. Þetta kvöld varð það formlegt að við værum par. Semsagt ég er búin að búa lengur með Rikka, honum Rikharði mínum, en ég bjó í móðurhúsum. Og mikið óskaplega er hann vænn fengur
. Vonandi förum við að fá tækifæri til að fara út að borða bara 2 ein, það væri gaman.
14.1.2008 | 15:03
Nokkrar myndir
Blár heimur
Krómatiskur skali
'An titils
Þessi er ekki enn búin að fá titil, Það er að myndast ljóð sem verður á rauða hlutanum
'A leið til Paradís
I vinnslu ennþá
Þessa mynd fékk Fríða systir í jólagjöf.
Jæja þá er ég búin að sýna það sem ég er að fást við. Verð duglegri að setja inn myndir, þegar ég hef búið til málverk eða skartgripi.
14.1.2008 | 09:13
Hálsmen
'Eg hafði fengið koparhálsmen og eyrnalokka í gjöf fyrir mörgum árum, en það vantaði eitthvað uppá. Svo ég tók mig til og bjó mér til öðruvísi skartgripi með startpúnkt í koparnum. Er mjög ánægð með þetta sett.
Þetta er i limegrænu, litur sem ég er mjög hrifin af.
Er ekki enn alveg sátt við þetta. Vantar eitthvað........ Herslumuninn..............
14.1.2008 | 06:35
Smá veikinda update
Já ég er heima í dag líka. Nökkvi er búin að gubba hvert einasta kvöld núna í heila viku og er orðið ansi´lítið sem við fáum í hann af mat. 'Eg ætla að hringja í doksa á eftir og tala aðeins við hann, líka til að láta vita hvernig gengur, og reyna að fá í stubbinn einhvern mat. Mér er farið að finnast þetta skrýtið, því þetta er ekkert ælupest held ég ,því það sem kemur niður er eðlilegt. En frekar lítið. En hvað um það. Já ég skal reyna að taka einhverjar myndir og setja inn. 'Eg hugsaði að ég hefði engar myndir af hálsmenum og slíku, er búin að gefa allt slíkt í jóla og afmælisgjafir en ég á eitthvað. Set það inn.
Skrifa meir seinna í dag.
12.1.2008 | 20:47
Laugardagur til lukku.
Dagurinn i dag er búinn að vera yndislegur. Við sváfum lengur en vanalega og ég svaf alveg til kl 9.30 sem ekki er hversdagslegur atburður. Allir voru svo sáttir og rólegir og ég fór inn að perla smá. Bjó til 1 hálsmen og svo ákvað ég að druslast til að laga aðeins til og búa til málingarpláss. Og viti menn, andinn kom í heimsókn, þáði kaffi með svolitlu attåt, og er búinn að vera hér meir að segja í kvöldmat. 'Ur þessu var mynd og vantar bara eitt lítið ljóð með. Kannski kemur brag-andinn í heimsókn í nótt og reddar þessu. Rikki tók strákana með sér út og var ansi lengi í burtu með þá svo það var frítt fram að mála og gleyma sér. Með músíkk á fullu ogl eit út eins og lúní, semsagt allt eins og það á að vera. En eins og venjulega situr þá heimilið á hakanum, en hvað með það? Það má segja að skíturinn er þaulsetinn gestur, hann fer ekki nema honum sé mokað út.
'Eg rakst á fína mynd í dag og er ansi sammála og mun svo sannarlega nota þetta sem góða afsökun þegar allt er á hvolfi hér heima:
12.1.2008 | 11:10
Gæludýr
'ef ég væri á þeim buxunum að fá mér gæludýr, þá er það ekki hundur eða köttur. Nei, nei!
Mig langar í gælubelju.
Sjáiði hvað þetta er sætt. Beljur eru olræt dýr. Ekki þarf að slá grasið, en reyndar þarf stærri poka en hundahægðapoka. Mér hefur alltaf fundist beljur frábær dýr. Brjóstgóðar með eindæmum og geta hreinsað á sér nefið með eigin tungu.
'eg vildi gjarnan endurfæðast sem gælubelja, reyndar i hóp, og fá að ganga um á grænu grasi, sem er hreinsað daglega, bíta af grænu mottunni og leggjast niður og jórtra.
Hver veit nema í gælubelju hópnum finnst kannski einn sætur boli................
Og vonandi bolagetnaðarvörn, vil ekki verða mjólkurbelja, og ég sem búkolla, með hár í halanum til að fara með mínum bola til París, mun lifa í sátt og samlyndi við alheiminn til æfiloka
Muuuuuuuuuu!
11.1.2008 | 16:53
Jólagjöf
10.1.2008 | 17:31
Niðurstaðan komin
Tilbúið!!!!!!
Eg hlakka til og mun reyna að láta þetta ganga fyrir. 'Eg hef gott af því að komast aðeins út og hafa pínulitla reglu á málingunni. Þegar ástandið er svona þá er það næstum því átak að byrja að mála aftur. En það er gott fyrir sálartetrið.

9.1.2008 | 18:43
Komin heim aftur
Jæja nú erum við bæði búin.
Háls, nef og eyrnalæknirinn vill senda mig í aðgerð út af því hvað nefið er skakkt og ég á að fara í ct í næstu viku til að geta séð hvað er að ske i kinnholunum.Því það var allt svo lokað að hann gat ekkert séð. Já, ég er barasta að fara að fá rétt nef, hugsa sér. 'Eg hef alltaf verið með skakkt nef og það versnar með árunum og ég hef verið að djóka með það ( líka smá alvara) og sagt að ef það yrði tekin portrettmynd af mér þá væri nefið í prófíl,haha. En það er reyndar að verða svoleiðis.
Nökkvi fór í eeg kl 11 og gekk allt vel en við fáum ekkert að vita fyrr en á morgun. Við skruppum svo i mollið á staðnum og keyptum ný vetrarstígvél á hann sem jólgjöf fra lönguömmu i Þolló. Hann var yfir sig happý í sínum sjömílnastigvélum, nr 28. Engar smá bífur á barninu. Þetta er góður arfur úr móðurætt. En ekki er faðirinn heldur smáfættur og stóri bróðir sem er 12 ára notar 43-44.
Hann svaf 13 tíma í nótt og svaf á leiðinni heim. Og núna er hann farinn að lýjast og er að fara í góð náttföt. 'Eg ætla bara fyrst að setja brauðgeigið í formin. Við spjöllum síðar...........
9.1.2008 | 05:39
Mikill svefn
Mikið er lúsin þreytt. Hann sofnaði kl 19.05 i gærkvöldi og er sofandi ennþá. Hann hefur ekkert vaknað í nótt og það er óvenjulegt. Það er gott að hann nái að hvíla sig. Hann á að mæta á sjúkrahúsið kl 11 i heilalínurit. 'eg er að fara núna uppúr 8 til háls, nef og eyrnalæknis. Er búin að bíða eftir þessum tíma síðan í byrjun október og vona að hann geti eitthvað hjálpað svo ég fái ekki svona kinnholusýkingar , allavega svo ég fái það ekki svona oft.
'Eg veit ekki hvort maður ætti að vonast til að fá svar á sjúkrahúsinu. En ég veit ekki hvort það er gott heldur vita ekkert. Hvort svarið er betra? svar eða óbreytt staða?
'Eg er ekkert kvíðin eða stressuð. Þetta er bara eitthvað sem við verðum að gera, en auðvitað væri skemmtilegra að hann væri bara að fara í leikskólann og það væri venjulegur dagur framundan. En svona er þetta bara.
Knús og klem til allra.
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar