Færsluflokkur: Menning og listir
19.10.2007 | 08:59
Enn ein læknahringferðin að byrja.
í neðri vör og höku. Þannig að ég þarf að tala við heimilislæknirinn okkar á mánudag og fá hann til að vísa okkur áfram. Aumingja Nökkvi hvað hann þarf að vera að skoðaður upp og niður bara 3 ára og alltaf hjá hinum og þessum. En það jákvæða er nú að hann er að fá hjálp. 'Eg fyrir mitt leyti hef ekkert pælt svo mikið í þessu því hann er bara hann og ekki allir eru eins sem betur fer. En lLeif mun halda áfram að hjálpa Nökkva í talþjálfun. Það er alveg rosalega gaman að heyra hvað Nökkva er búið að fara fram í tali síðustu 2 mánuðina. Reyndar þrf velvilja til að skilja hann en mér gengur það ver og finnst rosalga gaman að fá að heyra frá honum hvað hann er búinn að gera í leikskólanum. Og núna er hann búinn með pensilinið og ég er að vona að hann haldist frískur núna. 7-9-13.
En annars er allt í gúddý. Nikulás er búinn að smitast af kvefinu er virðist ætla bara að fá venjulegt kvef. Sem betur fer. Hann er heima í dag því það er planleggingardagur í skólanum. Það kemur sér vel þvi hann hefur gott að því að vera heima. Og það er drullukalt úti, brrrrr,brrrrrrrrrrrr. Er hreinlega bara að spá í að henda nokkrum viðarkubbum í ofninn og skella mér í málingarhabbittinn og dúllast við að vera kleina.

Menning og listir | Breytt 20.10.2007 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2007 | 04:53
Helv vistakerfi

L'usin mín fór á leikskólann í gær og var þar i 4 tíma og var greinilega gaman. 'eg ætla að láta hann vera lengur í dag. Lína vinkona hans varð rosalega fegin að fá hann til baka og voru þau að leika sér á fullu þegar ég kom að sækja hann. Og ég notaði tímann, ekki til að laga til, nei, nú málaði ég og lagðist aðeins á sófann i stúdíoinu mínu og velti fyrir mér heiminum.
Ég get ekki sag að ég hafi verið svo afkasta mikil en ég er þó byrjuð að mála.
Já eg er að fara til doksa á eftir og ætla að reyna að fá han til að senda mig til nef, eyrna og háls læknis. 'eg er búin að fa 3 kinnholusýkingar og er búin að fá nóg. Það hlýtur að vera að það sé hægt að gera eitthvað. Nú er kvefið minna, verkirnir meiri og ég finn ekkert bragð eða lykt. 'Eg verð alltaf að spurja alla aðra hvort maturinn sé nóg kryddaður og svo fæ ég að heyra " mamma, hann er búinn að kúka!" Sá á lykt sem fyrst finnur! En það virkar víst ekki og kannski best að ég taki þessar bleijur síðan ég finn enga lykt.

Mikið er gott að hafa svona bláan tíma milli 6 og 7 á morgnana. Maðurinn farinn í vinnunna og börnin sofa. Það er minn tími til að surfa, lesa blöðina og bara fá að vera ein. Gott að fá svona rólega byrjun á deginum. Hlakka ekki til að fara að vinna, þá byrjar stressið aftur að vekja þá kl 6.30 og vera komin í vinnunna kl 7.30. og að passa uppá að sá eldri komi sér út úr húsi á réttum tíma til að ná í skólann. Já, ekki meir um það. Blái tíminn er minn........................................
16.10.2007 | 06:56
Halló
Jú ég er enn á lífi, en maður minn hvað ég er orðinn þreytt á þessu ástandi að vera að drepast úr þessum verkjum í andlitinu. *Eg á að fara til doksa á morgun og ég verð að tala við hann og athuga hvort það sé ekki hægt að gera eitthvað í þessu svo ég sleppi við að vera svona margoft á ári. Er búin að vera á pencilini í 6 daga og verkirnir ágerast ef eitthvað er í staðinn fyrir að minnka. Svo ég ét verkjatöflur eins og hvert annað sælgæti núna. Tel mínúturnar þangað til að ég má taka næsta skammt, verð orðin pilludraugur fyrir rest. Hmm, hmm.
'A eftir ætla ég að fara með minnsta mann í leikskólann og byrja aðlögun uppá nýtt. Nú er hann búinn að vera frá leikskóla i rúmar 2 vikur vegna lungnabólgu og er ekki sáttur við að fara í leikskólann. Hann vill vera í Nökka húsi( og bendir upp í loft) hjá mömmu mín. Sætt. Þetta gerir nú mömmutetrinu ekkert gott að heyra svona þegar á að fara með hann. Sérstaklega þegar ´hún vil svo gjarnan vera pínulítið ein.
Var að hugsa hérna einn daginn og datt allt í einu í hug draumur sem mig dreymdi þegar ég var búin að vera með ástarpung í smá tíma. Mig dreymdi að á hvorri hendi á baugfingri væri ég með giftingarhringa (okkar beggja), og í hringjunum voru þeir bláustu steinar sem ég hef séð. Þeir voru kóngabláir og glitruðu svo sterkt og djúft.
'Eg fór yfir til ömmu og spurði hana hvort hún vissi hvað þetta þýddi og hún sagði mér að ég myndi eignast 2 börn.
Og í dag á ég 2 yndislega stráka. 'Eg spáði oft í því útaf hverju ég væri með 2 hringa og á sitthvorri hendinni, en er búin að komast að þeirri niðurstöðu að þi draumnum var verið að sýna mér að það yrði langt á milli barnanna. Og það er það. Það eru 9 ár á milli þeirra.
'eg vildi að mig dreymdi eitthvað svona fallegt núna, en núna dreymir mig mest um rottur. Ekki gælurotturnar okkar, heldur þessar ljótu, ojojojojojoj.......
Já ætla að gera lúsina tilbúna og reyna jáfnvel að verða listræn í dag.
11.10.2007 | 19:08
Já nú er allt á fullu.
Já, nú eru Nikulás og Rikki alveg á 100 að vinna inni í þeim hluta stofunnar sem er roti í.
'Alfkonan góða uppi á hóli er búinn að redda manni sem getur verið að stússast með Rikka i þessu og mun hann koma hér á laugardag og þá á að kasta sér í þetta af alefli. Svona er þetta hér á bæ að frúin í húsinu er svo léleg til heilsunnar að það verður að sækja hjálpina annað. En jedúdda mía hvað ég verð fegin þegar það er komið gólf aftur og það er hægt að fara að ganga almennilega frá hlutunum.Og ekki minnst að verða frísk aftur því það er farinn að læðast að manni grunur um að þetta rotavesen sé kannski ástæðan fyrir bágu heilsufari kleinunnnar og litla kleinuhrings. Svo bara 1000 kossar og knús til álfkonunnar góður. Þetta er ótrúleg hjálp.
Annars verð ég bara að sætta mig við sama svar og læknirinn gefur hér við hliðina. En það er nú farið að örla á betri líðan hjá bæði stórum og smáum hér á bæ og næstum hægt að anda með snýtiskaftinu, gaman, gaman,. Það er nú gott að alheimur minnir mann á hluti sem annars gleymast eins og það að hversu gott það er að anda með nefinu.
Kleinan hefur verið að potast og potast við að leggja grunna á striga því það er bara að bresta á aðal sýningatíminn og kleinan má ekkert vera að því að vera lasin,nú skal mála. Getur ekki einhver sent mér skjótan bata og 10 tíma meir á sólarhring. Verð bara að senda mail til örlaganornanna og biðja þær um að leysa þessa hnúta á mínum örlagaþráðum. Þær þurftu ekki að hnýta marga smá svona þétt. En það er betra að hafa marga smáa en einn stóran ljótan í enda þráðsins svo ég held að ég bara haldi kjafti og prísi mig sæla með það sem ég hef því það er alls ekki lítið, nei það eru ekki margir sem hafa það jafn gott og maður verður að muna það.
Svo til stóra skjegga þarna uppi í ljósinu, takk fyrir allt það góða og fallega sem þú hefur veitt mér.
10.10.2007 | 06:05
Líður illa

9.10.2007 | 12:29
Leiðindarástand
Hér er nú meira leiðindarástandið. Litla lúsin er enn lasinn og var sendur í röntgen i dag til að athuga hvort hann sé með lungnabólgur. Samkvæmt blóðprufu er hann með bakteriusýkingu en það er ekki vitað hvort þetta er s.s. lungnabólga eða efri öndunarfærasýking. Sá stærri sonur var með ælupestina i gær og náði að subba talsvert út. Var hugrakkur og fór í sturtu en varð bara að fara i "mjög snöggt bað" því hann notaði mestan tímann í að lesa spár í klósettskálinni.
En hann var mjög hress i dag og ekki var það verra að hann þurfti ekki í skólann.
Kleinan er alveg bakk af kvefi og sefur lítið á næturnar og aldrei þessu vant er kleinan búin að vera með hita í 4 daga og étur verkjatölur eins og brjóstsykur. Því kleinan hefur þann leiða ávana að fá hitaóráð og vera einskins nýt þegar hitinn gleypir hana.
'Astarpungurinn er ennþá með mótstöðuafl á móti bæði kvefi og alupest og er kleinan að vona að hann sleppi. Hann notar allan sinn auða tíma í að smíða og smíða og erum við að vona að þessu verkefni fari nú að ljúka. Jæja nú þarf kleinan að þjóta á foreldrafund og harka sér í gegnum það með litlu lúsina með því ekki getur hann af mömmu sinni séð.
Yndisleg og skilyrðislaus ást verður þetta að kallast, því í hans augum er ekki til betri kvenlufsa í þessum heimi en kleinan, .
7.10.2007 | 08:00
Ekki langt frá uppruna sínum.
Sá mynd af þessum i gær og þá sló það mig að við komum öll frá öpum, kannski sumir meir en aðrir??????
5.10.2007 | 07:46
Lasin lús.
Já, lúsin er enn lasin. Hann svaf þó í alla nótt. En út af fyrri veikindum hjá honum ákvað ég að hringja í doksa og fá hann til að hlusta hann. Og við eigum að mæta kl 10.20. nok timi.
Annað að frétta er að sá eldri er búinn að selja krossarann sinn og á að panta nýjan í dag. Hann er búinn að safna fyrir sjálfur og fékk smá hjálp hjá ömmu og afa því hann var ekki með fyrir sendingarkostnaði. Og hann gengur hreinlega um dirrandi af spenningi. En þetta er ekki verst, þetta er 3 krossarinn á 6 mán.
Svo er kleinan í alveg voðalegum pælingum. En enn sem komið er er þetta bara pælingar, en þið fáið að vita ef ákvarðanir verða teknar. Allavega er kleinan mjög spennt núna.
Dagurinn byrjaði samt ekki eins og best var á kosið. kleinan drap mús með aðstoð síns ástarpúngs. Það hafði komið mús í gildruna í nótt en bara löppin á greyinu hafði klemmst og þá hentist kleinan til og fyllti fötu af vatni og músaranganum var drekkt í snarhasti.
Það er alveg hræðilegt að það sé ekki hægt að búa til betri gildrur en þetta. N'u er kleinan með móral því þetta eru hin fallegustu dýr.
EN EKKI ÞEGAR ÞÆR KOMA Í KLEINUKOT!!!!
Þá eru þetta meindýr. Og hananú!
4.10.2007 | 10:06
GESTABÓKIN MÍN. HINT, HINT, HINT.

4.10.2007 | 10:00
Litla lúsin
Litla lúsin mín er lasin. Hann er kominn með hita og mikið kvef, þannig að það surklar i honum. Og svo í dag til að kóróna allt saman þá er hann kominn með gubbupest, ojojoj.
Kleinunni er sérstaklega illa við kvef hjá honum enda var hann lasinn meir eða minna fra nov 06 til mars 07. Og þá endanlega var fundiðút úr því að hann var með lungnabólgu. Hann er búinn að vera á astmalyfjum síðan nov 06 og ég get varla séð að það sé honum nokkuð til hjálpar. Því í hvert skipti sem hann kvefast þá verður hann virkilega lasinn. Hann er bara 1 sinni síðan nov búinn að fá venjulegt kvef sem ekki hefur þurft sýklalyf.
Hann fékk sterkari astmalyf i gær og ég er að vona að þau muni hjálpa honum meira en það sem hann er búinn að vera með, en það lyf er nú ekki annað en fyrirbyggjandi. En ég lifi í voninni. Vona bara að hann fari að verða eins og önnur börn sem fá hor í nös og það stoppar þar.
Vinkona mín er að fara til healer/osteopat i dag og ætlar að panta tíma fyrir mig og lúsina. Maður á ekki að láta neitt oreynt i leit sinni að betri heilsu.
Annars eru bara góðar fréttir úr kleinukoti og allir sælir í sínu híði. Haustið er komið með yndislega liti og frísklegan blástur og allt virkar hreint og gott.
'A góðum haustdögum lítur kleinan út í náttúruna og óskar þess að hún gæti málað svona náttúru en eftir að hafa reynt þá er hún þeirrar skoðunar að náttúran er fallegust í sjálfu sér og ekki á lérefti.
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar