Börnin mín eru monster!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Devil
Kleinan er búin að segja að hún sé að fara að mála mynd af sínum börnum.
NEI;NEI;NEI:
Hún er í staðinn búin að breyta þeim í skrímsli.
Þetta eru ekki hennar börn
þetta eru börn fílamannsinns!!!
Að það sé hægt að vera svona hæfileikalaus.
Kleinan er bara miður sín yfir þessu og mun fara inn í sitt stúdío vopnuð stóóórri málingarrúllu og valta yfir þessi ósköp.
Jedúddamía..........
Annars er búið að vera nóg að gera hjá kleinunni í dag.
Fór i kaffispjall, reyndar ekki með kleinur með sér,
þar sem hún var að fara í nossarakaffi
og á leiðinni heim mætir hún þeim stærri kleinuhring
sem móður og másandi kemur því út úr sér að rottan hans sé slösuð heima.
N'u voru góð ráð dýr og kleinan endasentist heim í bifreið sinni og kastaði  sér í símann til dýralæknisins.
Að því loknu skutluðu kleinan og kleinuhringur hinn stærri sér út í bifreiðina með hina særðu rottu og flýttu sér sem mest gátu í næsta bæjarfélag til lækninga.
Er komið'ð var til læknisins var rottan þukluð upp og niður og á endanum gefið róandi, sem ekki virkaði og sett i röntgen.
En litla skrímslið vildi ekki vera kyrr, (var bara rottuleg) og því náðist ekki mynd af henni og ástandið er slíkt að núna verður kleinuhringur hinn stærri að bíða i2 daga og fyljgast með hvort rottan notar fótinn.
Það er spurning hvernig fer, kannski verðum við að senda hana i einhverja New age lækningar. Ætli einhver stundi rottunálastungur???
Woundering

Yfirkleinan bakar

Nú stendur yfirkleinan og steikir á fullu og ákvað að skella sér i að steikja steikt brauð líka.


Kaffi og kleinur

I kaffi og kleinuspjalli heitir þetta ágæta blogg mitt. Það fer nú lítið fyrir kleinunum á þessu heimili, því ekki er hægt að kaupa þær úti í búð. Og þegar yfirkleinan kemur á sitt ylhýra föðurland er þetta eitt af því sem er  "must" að kaupa.

Er hreinlega að spá í að fara út í búð og kaupa það sem vantar í kleinur og steikja þó nokkuð margar og frysta niður. Já, svei mér þá, ef yfirkleinan kastar sér ekki bara í stórræði.

Hvað segið þið? jújú, kleinur standa kannski eins hátt hjá ykkur eins og mér enda geta flestir keypt þetta úti í búð. Væri líklega svona sjálf ef það væri auðvelt að nálgast kleinur. Fjarlægðin gerir fjöllin blá og kleinur að fyrirheitna kaffimeðlætinu.

 

Ekkert gengur i málverkjavinnu hjá kleinuskotti. Lítil virkjun þar. En stendur allt til bóta. Það á að vera sýning í enda mánaðar og svo aftur fyrir jól og er kleinan að spá í að reyna að setja upp einkasýningu. Það er stóri draumurinn. Joyful

Ef það tekst þá er ykkur að sjálfsögðu boðið dúllurnar mínar. Allir til Ingu Steinu Yfirkleinu i kaffi og kleinur með noe attåt.


Alheimur i hendi mér

 

 

sept 2007 080

'Eg held alheimi i hendi mér,

líf mitt og framtíð

er i minni hendi.

'Eg hef alheiminn i hendi mér,

 fæ styrk úr ljósi hans.

Alheimsljósið og góðleiki

fyllir mig og veitir mér styrk.

 

Þessa mynd og ljóð gerði ég til minnar bestu vinkonu sem er að ganga í gegn um strembna hluti. Hugsunin bakvið er að ég vona að hún  mörg ár inn í framtíðina muni að við erum okkar eigin gæfusmiðir og framtíðin er í okkar höndum. Við sækjum okkar krafta frá því góða hér í heimi og gefum gott tilbaka . Ef brjunin er góð, þá er endirinn góður líka.

Smile

Góð byrjun á deginum er að sitja á rúmkantinum og einfaldlega brosa framan i heiminn og finna að bara við það verður dagurinn bjartari og auðveldari.

Já, elskurnar mínar, smá vísdómsorð fyrir svefninn.

 

 

 

 

 


Nýr dagur

Nýr dagur, 9 stiga hiti. Börnin að fara í leik-og skóla. Kleinan lagaði allt til í gær og ætlar að kasta sér yfir pensla með eldmóð. Kleinan er búin að ráðast i stórverk og er að fara að reyna að mála stórt portrett af kleinuhringjunum 2.  Kleinan hefur aldrei hætt sér út á þessa hættulegu braut áður, en einhverntímann er alltaf fyrst. Kleinan lítur á þetta sem áskorun og ef kleinulistin á að halda áfram að þróast þá verður kleinan að reyna sig á öðrum sviðum en þeim sem eru trygg.

Og i dag þarf kleinan að fara að ýta á sinn fysioterapaut. Málið er að kleinan er sjúkraskrifuð i 4 vikur og á að fara í þjálfun en er ekkert búin að heyra ennþá. Og skrokkurinn er slæmur. Hægri öxl er verst og þarf kleinan að styðja hægri hendi með þeirri vinstri þegar hún þarf að lyfta einhverju og þegar kleinan mála. En svona er það að hafa verið "hreingernistæknir" i mööööööörg ár. Allavega verður gott að fá að vita hvað er að hrjá kleinuna. En kleinan verður líka að viðurkenna að vera heima er alls ekki slæmt.

Nope,nope Wizard


Búin að fá svar.

juli 2007 043
juli 2007 036
P9250233
Þessar myndir verð ég að fjarlægja frá speisinu mínu.
'Eg held nú ekki!!!
Jú ég mun fjarlægja þær en ég mun ekki nota speisið meir. Vona bara að það gangi betur hér.
Allavega kleinan is here!

Flutningur kleinunnar

Cool Jæja nú er kleinan flutt.

Það var ekki verandi á msn spaces þar sem myndverk kleinunnar voru ritskoðuð og þóttu stuðandi. Vonandi gengur betur hér og að kleinan geti notað þetta forum til að leyfa listaunnendum (Tounge) að líta á sín verk. Vær så god:


« Fyrri síða

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband