1.10.2007 | 11:44
Kaffi og kleinur
I kaffi og kleinuspjalli heitir þetta ágæta blogg mitt. Það fer nú lítið fyrir kleinunum á þessu heimili, því ekki er hægt að kaupa þær úti í búð. Og þegar yfirkleinan kemur á sitt ylhýra föðurland er þetta eitt af því sem er "must" að kaupa.
Er hreinlega að spá í að fara út í búð og kaupa það sem vantar í kleinur og steikja þó nokkuð margar og frysta niður. Já, svei mér þá, ef yfirkleinan kastar sér ekki bara í stórræði.
Hvað segið þið? jújú, kleinur standa kannski eins hátt hjá ykkur eins og mér enda geta flestir keypt þetta úti í búð. Væri líklega svona sjálf ef það væri auðvelt að nálgast kleinur. Fjarlægðin gerir fjöllin blá og kleinur að fyrirheitna kaffimeðlætinu.
Ekkert gengur i málverkjavinnu hjá kleinuskotti. Lítil virkjun þar. En stendur allt til bóta. Það á að vera sýning í enda mánaðar og svo aftur fyrir jól og er kleinan að spá í að reyna að setja upp einkasýningu. Það er stóri draumurinn.
Ef það tekst þá er ykkur að sjálfsögðu boðið dúllurnar mínar. Allir til Ingu Steinu Yfirkleinu i kaffi og kleinur með noe attåt.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
KLEINUR .... mamma kom með fullan poka af nýbökuðum kleinum um daginn. Manninum mínum þykja þær ofurgóðar (not me) en þær voru svoooo góðar að ég fékk mér eina með kaffinu.
Allt gott að frétta af ömmu mús, hún er rosalega ánægð og glöð ..... með okkur öll!
Kleinu klemm og kremjur!
www.zordis.com, 1.10.2007 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.