13.8.2008 | 05:14
Jú ég er hér.
Ok kannski tími til komin að uppfæra síðuna?????
Hér er ekkert mikið búið að vera að ske undanfarið. 'eg er enn sjúkraskrifuð og mun fara til íslands 31 ágúst, á tíma hjá tannsa 1 sept, jæks! En svona er þetta bara og tími til komin að verða verkjalaus eftir 4 ár.
'eg er á fullu núna að undirbúa mig fyrir markað um helgina. Spennandi.
Þetta er armband sem ég bjó til úr mínum eigin perlum, með þeim notaði ég antikgull rósir, og lakkaðar perlur.
Þetta eru líka perlur frá mér með tibetönsku silfri (les: tini). 'A ensku er þessi tækni kölluð tiedie, eða eins og við segjum, batikk tækni.
Þetta háls,em bjó ég til eftir að við fengu áskorun í temaklúbbnum. 'Askorunin fólst í því að búa til skartgripi úr einhverju sem þú sjálfu endurvinnur. grímuna hafði ég fengið frá þeirri sem kom með áskorunina, froskinn frá skóm sem ég keypti, bandið er skóreim, koparsólina bjó ég til úr koparplötu sem ég hamraði til , brenndi og svo póleraði. Stóra perlan er búin til úr brotinni bjórflösku.
Fyrir mér er þetta lífsins hringrás, sól, manneskjur, dýr, árstíðir og vatn, vindur og eldur. Allt þarf þetta að vera til þess að við getum lifað.
Smá gamalt hérna. Keramikk , bergkrstall, carneol og silfur. Selt, þurfti að búa til armband og eyrnalokka með. 

Já. nu er að koma að því að Nolli minn er að verða 4 ára og útaf því að ég verð heima á afmælinu hans Lása var ákveðið að hald uppá afmælin saman. Nolli vill hafa LATABÆÞEMA!!!!!! ég á að vera solla stirða og Rikki á að vera Benni glæpur, hmmm, en allavega það sem hann óskar sér mest eru Sportacus/íþróttaálfsföt í afmælisgjöf.
Nikulás er bara hamingjusamur með að hafa afmælið áður en ég fer, því þá fær hann góðar kökur, mömmukökur (hans orð
)

Jæja þarf að fara að ræsa.
Bæ!!!!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að sjá þig aftur dúlla!
Alltaf flott skartið þitt. Við kanski náum að hittast og sötra kaffi. Meikum deit
www.zordis.com, 13.8.2008 kl. 10:18
Lets!!!!
Inga Steina Joh, 14.8.2008 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.