Jólagleði

Jólahátíðin er búin að vera alveg ágæt hér á bæ. 'eg er reyndar búin að vera að vinna svo að segja mestapartinn af jólunum. Við náðum að klára stofuna aðfaranótt 22. Það á reyndar eftir að lista og laga svona smá atriði en það er hægt að halda jól fyrir því. 22 fórum við í 40 afmæli hjá vinkonu minni og það var alveg rosalega gaman. Hún bauð okkur öllum út að borða á kínverska veitingarstaðum hérna og svo var haldið á kránna og drukkið og dansað. Rikki passaði uppá að ég kæmist heim á réttum tíma því ég átti að fara að vinna daginn eftir. Þegar ég vaknaði þá var ég inni í rúmi og fór fram. Þá var kveikt á sjónvarpinu og ég frekar hissa yfir því útaf því að strákarnir voru hjá ömmu og afa. Og svo sá ég að það var búið að flytja sjónvarpið svo það var hreinlega að detta útaf borðinu. 'eg var mikið hissa á þessu og kenndi Rikka um allt.  Og lagaði þetta og dreif mig í vinnunna. Var reyndar frekar brísin ennþá en skítt með það. 'Atti bara að skúra. Þegar ég kom heim dagði ég Rikka frá þessu með sjónvarpið og fundum út úr því að líklega hefði ég gert þetta því ég sofnaði víst á sófanum og ekki séns að fá mig inn í rúm. En síðan ég vaknaði þar þá er ég líklega sökudólgurinn.Blush

Svo var haldið í bæinn að kaupa síðustu jólagjafirnar. Loksins kom kvöldið og engin skata hér á bæ. Norðmenn þekkja ekki slíkt. En þá fékk Rikki afmælisgjafirnar sínar frá okkur. Sett með rakspíra og sápu og 12 ára gamalt whiský og hann var mjög ánægður með það.

 

'a aðfangadag var haldið aftur í næsta byggðarlag því það hafði gleymst að kaupa kjötið og því var reddað. Svo var haldið heim og versta rykið og skíturinn fjarlægður. Sá minnst kleinuhringur var reyndar alveg sturlaður undir máltíðinni og má segja að það hefur sjaldan verið svona mikil skapmengun undir jólamáltíðinni. Vonum bara að þetta komi ekki fyrir aftur. En mikið rosalega fannst honum gaman af öllum gjöfunum og gargaði við hvern pakka: ný svona mynd, ný föt, nýr bíll!!!!!!!  O.s.f.v. Nikulás var mjög ánægður með allt sem hann fékk og við líka. Svo var haldið til tengdó og mikið gaman þar.

Nú eru raketturnar komnar í hús og Nökkvi heldur ekki vatni yfir öllu búmm búmminu sem við eigum og er ansi spenntur og Nikulás er við að stökkva úr eigin skinni af spenningi.

Mig langar bara mest í smá frið og ró og frí úr vinnunni. Er reyndar í fríi um helgina og hlakka til. Enda orðin frekar lúin. Og ég verð að viðurkenna að fastur rythmi í daglega lífinu hentar mér bara vel.

En það er alltaf gaman um jólin.Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með "kallinn" þinn .... Var litla lúsin sturluð yfir matnum  ..... hér var engin spenna þar sem pakkarnir eru teknir upp að morgni 25 .... kemur mjög vel út og engin pirringur yfir mat né óþolinmæði.  Hins vegar var okkur foreldrum drösslað framm úr eldsnemma morguns til að vera viðstödd og taka þá í morgungleðinni .... 

Jólaknús á ykkur ...

www.zordis.com, 28.12.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband