Þeytingardagur 2.

DQCAK66PDVCAZJO032CAZ9Z851CAYI33AFCA8NVXARCAJZQEXRCATM8GKICAGK1W8LCAN5YLQECA9M75FDCAT0MUGWCANG4GXHCADVIW20CACGM9MVCAUT4JU2CAJK8TKNCA01E2AJCAY7Z51CCAGMNC22
Nú toppaði sá elsti allt annað sem áður hefur gleymst eða misskilist.
I gær áttum við öll tíma í klippingu og hann átti að koma strax eftir skóla. Skólinn var búinn 13.50 og hann átti tíma kl14.  'Eg og Nökkvi vorum búin að klippa okkur og biðum eftir honum. Og tíminn leið og kl 14.15 keyrði ég upp í skóla, nei hannvar ekki þar. 'Eg hringdi heim, ekkert svar. KL 14.20 sá ég hann loksins koma hæg röltandi niður aðalgötuna. En tíminn var liðinn, næsti kúnni kominn og ég þurfti að borga fyrir hans tíma þó hann hefði ekki notað hann. 'eg varð milt sagt brjáluð.......... Og lét hann heyra það. En hans afsökun var að hann hefði ekki verið viss hvor stofan það væri og hann hefði ekki séð bílinn okkar.  Bæ þe vei þá notum við aldrei hina stofuna þegar við klippum okkur. Og ég sem sagt lét hann heyra það og hann hvarf inn í herbergið sitt þegar við komum heim og ég sá hann ekki meir fyrr en ég kom af kvöldvakt. Jedúddamía, ég get ekki beðið eftir að heyra frá læknunum, hann verður að fá að halda áfram á ritalíni. Þetta er partur af hans vandamáli, hann getur ekki munað svona lagað og ég veit það eiginlega. En maður verður að reyna að fá hann til að taka smá ábyrgð. En hann þarf lyfin því þá getur hann sorterað hugsanirnar og nær að skipuleggja sig.
I dag er ég aftur að fara til healer. Og Nikulás ætlar að fara með mér. Hann á ekki tíma, en ég ætla að athuga hvort hann geti fengið tíma seinna. Og líka að fá að vita hvort hann telur sig getað hjálpað Nikulási. 'Eg er að spá í því, útaf að Nikulás er með sérstaka týpu af psoriasis undir fótunum og inní höndunum og fær alveg einstaklega slæm köst á veturnar. Þá eru hendurnar, aðallega puttarnir eins og hráar kjötbollur og ég geri ekki annað en að skifta um sáraumbúðir. Og þetta er svo sárt. Og í fyrra fékk hann kröftuga sýkingu í þetta og þurfti bæði pensilinkrem beint í sárin í marga daga og sterkan pensilinkúr til að drepa þetta niður.
Já,já. Svona er þetta bara eins og norðmennirnir segja. Og stundum er það rétt að maður verður að sætta sig við hlutina en ég get mig ekki fyrr en ég er búin að prufa allt til að getað hjálpað strákunum með sín vandamál.
En sveinki kom með gjafir til beggja í nótt. Smá bömmer því Nikulás átti báða smábílana sem sveinki kom með  
Hann gerir betur næst..........
  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Æj elsku karlarnir þínir ... Mér finst púkó að  hárgreiðslustofan skildi rukka þig!  Dæmigerð norsk níska!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!  Vori þetta nægjanlega mörg upphrópunar merki.

Gangi þér vel í dag hjá heilaranum og knús til þín.

www.zordis.com, 13.12.2007 kl. 12:52

2 Smámynd: www.zordis.com

.... stal þessu hjá bloggvini mínum Guðmundi!

Langaði að senda þér kveðju og kalla á þig hér og nú !!!!!!!!!

www.zordis.com, 22.12.2007 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband