21.11.2007 | 16:44
Allt fer að fá sína réttu mynd
Loksins fer maður að sjá fyrir endann á framkvæmdunum. Rikki setti í bakhurðina um helgina þótt hann væri alveg drulluslappur. Hann greyið smitaðist af þessari pest sem strákarnir eru búnir að vera með. En er betri núna. Og hann er farinn að útbúa hellinguna sem á að vera á gólfinu. Svo þetta fer allt að batna. Annars er nú bara allt í góðu hér. Er reyndar farin að finna fyrir þessum verkjum sem maðurinn var búin að vara mig við en hef þetta vel af ennþá. Með illu skal illt út reka...................... Og ég finn fyrir því að ég er léttari til sinns en ég hef verið leeeeeeeeengi. Og stend sjálfa mig að því að brosa þótt ekki sé nein sérstök ástæða fyrir því.
Það er bara létt yfir mér og ég er þakklát. 'Eg fór i kirkjuna á sunnudag og var mjög sátt. Það var nú lítið af fólki en boðskapurinn var sá sami og presturinn , kona, var yndisleg. Það á að byrja sunnudagaskóli fyrir íslendinga og ég er að spá í að fara með strákana. Sjáum til hvernig gengur með þann stóra,hmmmmm...
'I morgun hljóp ég um allt og lagaði til og svei mér þá , ég komst yfir allt húsið í einum heljarrykk! JESSSS!!!!!! Svo hellti ég upp á kanilkaffi og fékk eina vinkonu i heimsókn og ég veitti henni "lynkurs" í málingartækni. 'Eg ætla að mála-kristna alla þá sem eg get. Hún varð alveg heilluð. Hún var búin að vera að pukrast við þetta heima og ég ákvað að bjóða henni í heimsókn og við mundum mála saman. En ég held að hún hafi ekki þorað að koma með málingardótið sitt, but I was a person on a mission, og skellti mér í að mála fyrir hana og þá mynd tók hún með heim sér til hliðsjónar. Og svo þaut hún í næsta byggðarlag að kaupa sér betri pensla og meiri málingu. Því eins og allir sem byrja´þá á hún bara sett með prím litum og vantar þessa helstu jarðliti og liti sem er gott að blanda með.
'eg er spennt að heyra í henni. Það er gaman að geta leiðbeint fólki sem virkilega langar en hefur sig ekki í að mæta í málaraklúbba og byrja, sérstaklega ef það er alveg nýtt i þessu hobbýi.
'Eg er að verða búin með jólagjafirnar til 'islands. Sem er nú bara besta mál. En ég vil ekki segja meir en það að ég hef staðið við áður gerða samninga um það að reyna að búa til gjafirnar sjálf.......................
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Áður gerðir samningar! Ég held að gjafir sem eru persónulegar slái jafnan meira í gegn en allt prjál úr búðum! Nema kanski demantar og rúbý steinar! LOL .....
Já, þú minnir mig á að jólin eru að nálgast .... kanski ég tálgi út spítukarla þessi jólin
Gott að heilsan sé betri og vonandi að þessu hríð sé á enda!
www.zordis.com, 21.11.2007 kl. 20:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.