17.11.2007 | 06:56
Líf mitt er að fyllast af birtu
Eins og ég var búin að segja frá átti ég og Nökkvi að fara til osteopat/healer á fimmtudag. Sem við gerðum.
Það var hrein og beint yndislegt og ég þakka æðri máttarvöldum fyrir að hafa beint leið minni að þessum manni. 'Eg fór fyrst inn til hans og byrjaði hann að vinna með að leysa upp spenningar í liðum og vöðvum sem ég er búin að berjast við í mörg ár. Þegar hann var "búinn" að meðhöndla mig og ég átti að vera búin, þá spurði ég hann hreint út hvort han gæti séð meira en við og svaraði hann því játandi. (Það er ekki talað mjög hátt um svona hluti í Noregi og maður kemst að hjá svona fólki gegnum kunningjaskap). Þá spurði ég hann bara hreint út hvort ég hefði komið með einhvern með mér sem ekki ætti að vera með mér. Hann horfði á mig í smá stund og reisti sig upp og kveinkaði sér og stundi og eftir smá stund svaraði hann , já.
Hann skrifaði eitthvað á blað og bað mig svo að koma og setjast á bekkinn, sem hann meðhöndlar fólk á, og gerði svo hlutina sína og það sem undarlegt var að hann kom eingöngu við mig það sem mér er búið að vera illt. Eftir smá stund var eins og þungu fargi væri af mér létt og hann sagði að hann væri búinn. Þvílíkur léttir og gleðitilfinning!
Hann sýndi mér 2 línu úr Jóhannesarguðspjallinu sem ég átti að fara með, út um allt hús heima til að hreinsa út neikvæða orku sem er búin að vera að gera mér vont. Hann sagði svo að þetta gerði hann ekki oft en núna hefði hann þurft. Og ég fékk svo miðann sem hann skrifaði á og þar stóð " Det er ikke ok. Hun har en forbannelse. Der er i huset noe ikke bra energi" Sem mundi þýðast.: Það er ekki ok, Hún er með bölvun og í húsinu er ekki góð orka. Það sem ég var farin að halda eftir öll veikindin.
Hann sagði við mig að ég þurfi að koma aftur, Nökkvi verður full frískur eftir þetta , hann er búinn að vera einstaklega glaður og hress eftir að við komum heim. Og að ég muni fá mismunandi viðbrögð við þessu en ég verði bara að halda út. Mín viðbrögð eru mest bara búin að vera gleði, gleði, gleði. Það er svo afskaplega langt síðan mér hefur verið svona létt til sinns.
Eins og hann bað mig um þá hreinsaði ég húsið þegar ég kom heim og að sjálfsögðu títlaði Nökkvi með mér út um allt og pískraði með mér.
'eg er svo þakklát fyrir að það finnst svona fólk sem getur hjálpað okkur hinum og uppfull af þakklæti til æðri máttarvalda. Takk, takk.
'a sunnudag er íslensk messa í kristiansand og mig langar að fara. Það verður yndilegt að heyra messu á íslensku og þar að auki vil ég fara og þakka fyrir mig. 'eg á yndislega að og hef verið heppin. 'Eg vil ekki taka þessu sem sjálfsögðum hlut því það er það ekki.
Þeir sem hafa hitt mig eftir meðferðina segja að það sé svo létt og bjart yfir mér þ´´o svo að þeir viti ekki hvað. Gaman, en það er alveg nóg að ég finni breytinguna sjálf.
Alheimsljós til ykkar allra og kærleikur.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dásamlegt að heyra að frænkuskinnið mitt sé umvafin hreinni, einni birtu ljóss og kærleka! Eftir allar veikindasögurnar þá var konu farið að gruna að ekki væri allt með felldu.
Vonandi að sóttin hverfi og að þið mæðginin getið átt góða daga. Og nýta þessa fallegu sálargeisla á strigann!
Knús til þín elskan mín ....
www.zordis.com, 17.11.2007 kl. 08:17
takk
Þetta er bara yndislegt, hreinlega!
mikill léttir. Gott að það eru sterkar sálir í þessari veröld.
Inga Steina Joh, 17.11.2007 kl. 08:39
Þú getur bókað að það eru sterkar og traustar sálir, þar ert þú á meðal og færir okkur engils ljós!
Vona að straumurinn brjóti leið og vellíðanin haldi sér fast við ykkur.
Laugardagskvöld og 7 strigar eru að brosa til mín. Búin að rissa á 2 og nú er bara að spíta í ......
www.zordis.com, 17.11.2007 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.