30.10.2007 | 20:27
Sýningin er hafin.
Gúddag allir saman.
'Eg var búin að segja að ég ætlaði að setja inn myndir frá sýningunni. En viti menn að ég gleymdi að taka með myndavélina. Já, það er ekki hægt að muna eftir öllu.
Föstudagurinn byrjaði að sjálfsögðu með stressi. Skutlaði þeim litla í leikskólann og fór svo í klippingu. Allt var óskaplega vel planlagt og átti að vera nógur tími. Fór svo að týna saman það sem þurfti fyrir sýninguna og viti menn að nýja málverkið mitt sem átti að vera 1 af 3 hluta málverki var of stórt fyrir bílinn!!!!!!!!!!!!! Sama hvað ég snéri og potaði, nei það fór ekki inn. Og þar sem ég átti að mæta á fund út af þeim eldri stuttu seinna gafst mér ekki tími til að reyna að redda mér á annan hátt.
Nú þá hélt ég á fundínn sem var margfræðilegur, og þar á meðal ákveðið að hann ætti að byrja á ritalin á mánudag, semsagt í gær. Og SVo var haldið á sýninguna. Var komin þangað um 2 leytið og þá voru hinar kellurnar mættar og mér til mikillar skelfingar voru þær þá farnar að hengja upp og það var bara ekki að gera sig hvernig þetta leit út.
'Eg hugsaði með mér að þær væru búnar að eyðileggja sýninguna. En ég vildi ekki blanda mér inn. En sem betur fer vildi ein af þeim fá hjálp og leitaði til mín. Því ég er komin með talsverða reynslu í þessu enda var ég ábyrg fyrir uppsetningum á sýningum áður. Nú, ég tók mig til og hengdi upp allar myndirnar, 103 stk, með góðri aðstoð frá nokkrum sem sáu sömu vandamál og ég og við vorum búnar að þessu kl 20,30 um kvöldið og þá var haldið heim.
'A laugardag ákvað fjölskyldan að mæta með á sýninguna til að styðja við bakið á mér og var sýningin opnuð með pomp og prakt kl 14. Bæjarstjórinn opnaði sýninguna og menningarvikuna og ung stúlka spilaði á gítar og söng fyrir okkur nokkur lög. Það eina sem var lélegt var að það mætti enginn frá blöðunum. Þannig að ég tók mig til og skrifaði bréf þar sem ég formlega bauð þeim á sýninguna og bað þá samtímis að vera flinkir við að styðja svona framtakssemi sem menningarvikur eru og að styðja við menninga´líf og listamenn. 'Eg vona bara að það hafi einhver áhrif.
'A sunnudag sat ég vakt og það rigndi eldi og brennistein og komu því fáir. En það sem gaman var, var að þeir sem komu in sýndu málverkjunum mínum mikinn áhuga.
'i gær byrjaði sá stóri á ritalín við blandaðar tilfinningar. en eina leiðin til að vita hvort það muni hjálpa er að prufa og hann á að vera á þeim í 4 vikur.
En um morguninn tekur hann eftir því að rottan hans, hún Fíffa, er einstaklega slöpp greyjið. Og hann bað mig um að fylgjast með henni. 'Eg tók svo eftir því að það voru einhver kvikindi að skríða á henni og hringdi i dýralæknirinn sem skrifaði út flóarlyf. Sem ég bar svo á hana, en ´hun bar vversnaði og það endaði með því að hún dó í fanginu á Nikulás í gærkvöldi. Og hann var alveg rosalega dapur.
'i dag var hún jörðuð út í garði eins og hin dýrin hans. Og við fáum 2 nýjar rottur á fimmtudag. 'Eg lofaði honum þessu að þegar hennar tími væri búinn fengi hann 2 nýjar rottur og ég mun standa við það. Enda er hann rosalega hrifinn af þeim og flinkur með þær.
Semsagt búið að vera góðir og minna góðir tímar hér núna.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Um bloggið
I kaffi og kleinuspjalli
Nýjustu færslur
- 1.3.2009 Nytt
- 3.2.2009 Nú skal meður vera duglegur.
- 1.2.2009 Gleðilegt nýtt ár!!!
- 12.11.2008 'Eg læðist her inn..........
- 14.8.2008 Nokkrar vikingakeðjur
Færsluflokkar
Tenglar
Hitt og þetta
- Kaffe, kleinur, kunst og perler Mitt norska blogg
- Lillesand og Birkenes Maleklubb
- TOBBA
- Indigo börn
- Akiane
- Amatörar
- Illustration friday
- Designerspira
- Kort og annað
- Pep up the world
- Skemmtilegir hlutir á bloggið
Vinir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.