Halló

Jú ég er enn á lífi, en maður minn hvað ég er orðinn þreytt á þessu ástandi að vera að drepast úr þessum verkjum í andlitinu. *Eg á að fara til doksa á morgun og ég verð að tala við hann og athuga hvort það sé ekki hægt að gera eitthvað í þessu svo ég sleppi við að vera svona margoft á ári.  Er búin að vera á pencilini í 6 daga og verkirnir ágerast ef eitthvað er í staðinn fyrir að minnka. Svo ég ét verkjatöflur eins og hvert annað sælgæti núna. Tel mínúturnar þangað til að ég má taka næsta skammt, verð orðin pilludraugur fyrir rest. Hmm, hmm.

'A eftir ætla ég að fara með minnsta mann í leikskólann og byrja aðlögun uppá nýtt. Nú er hann búinn að vera frá leikskóla i rúmar 2 vikur vegna lungnabólgu og er ekki sáttur við að fara í leikskólann. Hann vill vera í Nökka húsi( og bendir upp í loft) hjá mömmu mín. SættBlush. Þetta gerir nú mömmutetrinu ekkert gott að heyra svona þegar á að fara með hann. Sérstaklega þegar ´hún vil svo gjarnan vera pínulítið ein.

633134

 

Var að hugsa hérna einn daginn og datt allt í einu í hug draumur sem mig dreymdi þegar ég var búin að vera með ástarpung í smá tíma. Mig dreymdi að á hvorri hendi á baugfingri væri ég með giftingarhringa (okkar beggja), og í hringjunum voru þeir bláustu steinar sem ég hef séð. Þeir voru kóngabláir og glitruðu svo sterkt og djúft.

'Eg fór yfir til ömmu og spurði hana hvort hún vissi hvað þetta þýddi og hún sagði mér að ég myndi eignast 2 börn.

Og í dag á ég 2 yndislega stráka. 'Eg spáði oft í því útaf hverju ég væri með 2 hringa og á sitthvorri hendinni, en er búin að komast að þeirri niðurstöðu að þi draumnum var verið að sýna mér að það yrði langt á milli barnanna. Og það er það. Það eru 9 ár á milli þeirra.

 

'eg vildi að mig dreymdi eitthvað svona fallegt núna, en núna dreymir mig mest um rottur. Ekki gælurotturnar okkar, heldur þessar ljótu, ojojojojojoj.......

Já ætla að gera lúsina tilbúna og reyna jáfnvel að verða listræn í dag.FootinMouthSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Þetta er nú meira ástandið á þér kona.  Þú verðru að reka þennan fjanda úr þínum húsum og leggja yfir þig englaábreiðu

Vertu listræn í dag .. en mikið vaknaðir þú snemma í dag?

Knússlur og klemmur á norska vísu svo trilljón batnaðaróskir ....

www.zordis.com, 16.10.2007 kl. 07:14

2 Smámynd: Inga Steina Joh

Vakna alltaf 6-6.30. Já er að vinna í bata, kemur bara seint. En þu snögg að skoða. Takk dúllan mín fyrir góðar óskir, er búin að kveikja á þakkarkerti fyrir þá sem voru að hjálpa mér í nótt. Þakklát fyrir allt

Inga Steina Joh, 16.10.2007 kl. 07:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband