Já nú er allt á fullu.

Já, nú eru Nikulás og Rikki alveg á 100 að vinna inni í þeim hluta stofunnar sem er roti í.

fairygodmother

'Alfkonan góða uppi á hóli er búinn að redda manni sem getur verið að stússast með Rikka i þessu og mun hann koma hér á laugardag og þá á að kasta sér í þetta af alefli. Svona er þetta hér á bæ að frúin í húsinu er svo léleg til heilsunnar að það verður að sækja hjálpina annað. En jedúdda mía hvað ég verð fegin þegar það er komið gólf aftur og það er hægt að fara að ganga almennilega frá hlutunum.Og ekki minnst að verða frísk aftur því það er farinn að læðast að manni grunur um að þetta rotavesen sé kannski ástæðan fyrir bágu heilsufari kleinunnnar og litla kleinuhrings. 2003-03-26%20Mystery%20disease%20cousin%20of%20common%20cold%20_5Svo bara 1000 kossar og knús til álfkonunnar góður. Þetta er ótrúleg hjálp.

 

Annars verð ég bara að sætta mig við sama svar og læknirinn gefur hér við hliðina. En það er nú farið að örla á betri líðan hjá bæði stórum og smáum hér á bæ og næstum hægt að anda með snýtiskaftinu, gaman, gaman,Grin. Það er nú gott að alheimur minnir mann á hluti sem annars gleymast eins og það að hversu gott það er að anda með nefinu.

 

Kleinan hefur verið að potast og potast við að leggja grunna á striga því það er bara að bresta á aðal sýningatíminn og kleinan má ekkert vera að því að vera lasin,nú skal mála. Getur ekki einhver sent mér skjótan bata og 10 tíma meir á sólarhring.  Verð bara að senda mail til örlaganornanna og biðja þær um að leysa þessa hnúta á mínum örlagaþráðum. Þær þurftu ekki að hnýta marga smá svona þétt. En það er betra að hafa marga smáa en einn stóran ljótan í enda þráðsins svo ég held að ég bara haldi kjafti og prísi mig sæla með það sem ég hef því það er alls ekki lítið, nei það eru ekki margir sem hafa það jafn gott og maður verður að muna það.

 

Svo til stóra skjegga þarna uppi í ljósinu, takk fyrir allt það góða og fallega sem þú hefur veitt mér. Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Dúllan mín eruð þið með húsasótt?  oJojOJ ... Gott að vita að það eru allir að skríða saman í heilt.  RAki og kuldi eru slæmar samverur!

Sendi þér allavega 2 tíma frá mér svo nú er bara að smæla framan í heiminn og fá hjá fleirum!

Knús elskan mín.

www.zordis.com, 11.10.2007 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

I kaffi og kleinuspjalli

Höfundur

Inga Steina Joh
Inga Steina Joh
Kúnstner með meiru.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...illa_godess
  • ...vory_godess
  • ...cimg1722

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband